Fundu bein og dularfullan peningaskáp í hryllingshúsi meinta raðmorðingjans

Fundu bein og dularfullan peningaskáp í hryllingshúsi meinta raðmorðingjans

Lögregla í Fíladelfíu í Bandaríkjunum rannsakar nú umfangsmikið og óhugnanlegt mál sem tengist Raymond „RC“ Horsch, 82 ára manni sem lést í fyrra og er grunaður um að tengjast dauða eða hvarfi sjö kvenna. Rannsókn málsins tók nýja stefnu í sumar eftir að lögregla gerði húsleit á heimili Horsch og fann þar gríðarlegt magn stafrænna gagna, skotfæra og fíkniefna. Meðal annars fannst mynband sem virðist sýna Horsch ráðast á konu að nafni Nicole Fusaro, en hennar hefur verið saknað frá árinu 2018.

Sjá einnig: Óhugnanlegt myndband fannst á heimili grunaðs raðmorðingja Horsch var um tíma þekktur í jaðarkima klámiðnaðarins þar sem hann framleiddi ofbeldisfullt klám sem innihélt sviðsett morð. Hann skrifaði eins hrottalegar klámbækur. Í listsköpun sinni spilaði Horsch gjarnan sjálfur hlutverk miskunnarsama morðingjans sem frelsaði þjáðar og jaðarsettar konur frá viðjum fíknarinnar með því að drepa þær.

Nú er þó talið að Horsch hafi gert alvöru úr þessum órum sínum en á því myndefni sem fannst á heimili hans sjást að minnsta kosti fjórar konur sem virðast meðvitundarlausar eða látnar og tíu aðrar virðast hafa tekið inn of stóran skammt fíkniefna. Fimm konur sem tengjast honum eru taldar látnar og tveggja er enn saknað, þeirra á meðal fyrrverandi eiginkona hans, Amy McHale. Þegar húsleitin fór fram í september höfðu engin lík fundist í tengslum við rannsóknina.

Undanfarið hafa rannsakendur kembt heimili Horsch, sem í fréttum um málið er kallað hryllingshúsið, og grafið upp bakgarðinn. US Weekly greindi frá því á föstudaginn að rannsakendur hafi fundið bein við uppgröftinn. Ekki liggur þó fyrir hvort um mannabein er að ræða.

Eins munu rannsakendur hafa fundið sönnunargögn í formi erfðaefnis inni á heimilinu. Rannsóknina má rekja til þess að einkasonur Horsch, Eugene, var handtekinn í tengslum við fíkniefna- og vopnalagabrot í sumar. Kona sem var með Eugene þegar lögregla hafði afskipti af honum framvísaði skilríkjum sem tilheyrðu konu að nafni Blair Tonzelli sem hefur verið saknað frá árinu 2023, en hún er jafnframt ein þeirra kvenna sem lögregla hefur borið kennsl á í hrottalegu myndefni sem fannst í hryllingshúsinu.

Lögregla óttast að Horsch hafi myrt konur og losað sig við lík þeirra með því að leysa þau upp í efnablöndu, en hann skrifaði einmitt um slíkt í einni bók sinni. Horsch starfaði eins um tíma við framleiðslu fíkniefna og er talinn hafa búið yfir nægri efnafræðiþekkingu til að leysa upp lík. Að sögn New York Post fundust ekki bara bein við ítarlegu leitina heldur líka falinn peningaskápur, en ekki liggur fyrir hvað skápurinn geymdi.

Horsch lést af völdum lungnakrabbameins í fyrra.

Related Articles

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Back to top button