Gunnar Ingi fann sálufélaga sinn í Bakkus og barðist gegn björgun: „Þetta var sannarlega sturlun. Ég var rekald í lífsins ólgusjó“
Gunnar Ingi fann sálufélaga sinn í Bakkus og barðist gegn björgun: „Þetta var sannarlega sturlun. Ég var rekald í lífsins ólgusjó“
HELVÍTIS FANTUR ERTU! er ævisaga Gunnars Inga Gunnarssonar sem lungann úr starfsævi sinni var yfirlæknir á Heilsugæslunni Árbæ. Hann kom reyndar víðar við, svo sem á Slysavarðstofunni og Læknavaktinni, auk þess að grípa í afleysingar á fjölmörgum stöðum á landsbyggðinni.
Þá lét hann jafnframt til sín taka á öðrum vígstöðvum og gekk það ekki alltaf þegjandi og hljóðalaust fyrir sig, eins og dæmin sanna. Gunnar Ingi hefur næmt auga fyrir því skoplega í tilverunni og ber bókin þess glöggt merki. Fjölmargar skemmtilegar sögur af ótrúlegum uppákomum er hér að finna en einnig dapurlegar.
Hann hefur séð dauðann í sinni óvenjulegustu mynd og stóð um tíma sjálfur, af eigin völdum, á bjargbrún tilverunnar. Stuttu síðar gerði ólánsmaður einn úr undirheimunum „heiðarlega“ tilraun til þess að koma honum fyrir kattarnef og ekki bara einu sinni. Það er Guðjón Ingi Eiríksson sem skrifaði bókina og er hún gefin út af Bókaútgáfunni Hólum.
Hér á eftir fer kafli úr bókinni: Á bjargbrún tilverunnar Í bókinni Helvítis fantur ertu! segir Gunnar Ingi Gunnarsson frá ævi sinni og dregur þá fram margvíslegar myndir. Hann segir frá vafasömum gjörningi innan Loftleiða, þar sem faðir hans var framkvæmdastjóri ásamt Alfreð Elíassyni, mótunarsumrum í Hrosshaga, þar sem gekk á ýmsu, læknisstörfum víðs vegar um landið og mörgum hverjum ansi skoplegum, en einnig þegar hann stóð á bjargbrún tilverunnar af völdum áfengisneyslu og búinn að brenna allar brýr að baki sér.
Hann sá bara eina leið út úr vandanum og verður aðdragandanum að henni lýst hér á eftir: Stolist í vínskápinn Raunsönn flokkun á neyslu alkóhóls er þannig, að flestir neytendur „vökvans“ gera það með svipuðu neyslumynstri, það er að segja þeir neyta hans án áfergju, sektarkenndar eða annarrar vanlíðunar. Fyrst, þegar ég stalst í vínskapinn hans pabba, voru foreldrar mínir erlendis og treystu okkur Hjördísi, systur minni, fyrir heimilinu. Ég hafði á þessum tíma engan vilja til þess að smakka áfenga drykki sjálfur, enda bara 12 eða 13 ára, en bauð þess í stað jafnaldra mínum, sem bjó einnig á Bugðulæk, að koma í heimsókn.
Hann kom, var viljugri en ég í þessum efnum og þáði glaðbeittur hjá mér fullt glas af Johnny Walker. Eftir töluverðan tíma sá ég að leikfélaginn var orðinn stórskrýtinn, bæði í hreyfingum og tali. Hann ýmist hló hátt og furðulega, eða gat varla talað skiljanlegt mál.
Ég varð mjög hræddur, setti flöskuna í skápinn og hellti úr glasinu eldhúsvaskinn. Á meðan sat félaginn á gólfinu skellihlæjandi á mjög sérstakan hátt. Ég hálfpartinn dró hann inn í herbergið mitt, velti honum upp í rúmið og sagði honum að reyna að sofna í smátíma.
Það gerði hann ekki, heldur fór hann að reyna að syngja á milli hláturskastanna. Mér var ekki lengur skemmt. Ég sat yfir vininum þar til hann loks sofnaði — og hraut furðulega.
Ég hafði fengið vitneskju um það í Hrosshaga, þar sem áfengi sást þó aldrei, á meðan við Gunnar Rafn frændi vorum sumarstarfsmenn á bænum, að flestallir gætu lifað af svona tilverukrísu, sem ég var þarna ábyrgur fyrir. Nú, þegar vinurinn vaknaði til lífsins var hann kexruglaður og starði á mig eins og lifandi spurningarmerki. Hann virtist ekki muna eftir byrluninni og var mjög þögull.
Ég þorði alls ekki að lýsa „glæpnum“ sem ég hafði staðið fyrir en stakk upp á því, að hann færi í bað hjá mér, áður en hann færi heim. Þannig yrðu sennilega minni líkur á, að foreldrar hans kæmust að bernskubreki mínu. Þessi afglöp urðu til og hurfu samdægurs.
Frá þessu atviki liðu mjög mörg ár þar til Bakkus náði hálfgerðu kverkataki á mér. Faglegar hömlur Frá unglingsárum mínum og út læknisferilinn fékk ég mér öðru hverju í glas með vinum og kunningjum á góðum stundum og gat þá verið hrókur alls fagnaðar ef því var að skipta. Þarna var fólk að gera sér glaðan dag og í leiðinni jafnvel að fagna einhverjum áfanga.
Svo var „partýið“ bara búið og þá hélt hin daglega rútína áfram. Ég var ekkert að teygja lopann og sulla í víni daginn út og inn. Og aldrei sat ég einn að sumbli.
Mér var mikið í mun að standa mig ávallt í stykkinu í starfi mínu sem læknir og sömuleiðis í því sem ég tók að mér þess utan. Kannski mætti segja að ég hafi verið með nokkurs konar innbyggðar, faglegar hömlur á þessum tíma. Það átti heldur betur eftir að losna um þær!
Sígur á ógæfuhliðina Ég lagði hlustunarpípuna á hilluna vorið 2016, eftir afleysingartúr okkar Ernu um landið og þá aðallega Austfirði, eða örfáum mánuðum fyrir sjötugsafmælið mitt. Það voru mér mikil viðbrigði að setjast í helgan stein eftir að hafa — mér liggur við að segja frá fæðingu — verið á útopnu ýmist í leik, námi, starfi eða félagsmálavafstri. Ég var oft með nokkra bolta á lofti í einu.
Þannig vildi ég hafa það. Nóg að gera. Þannig ætlaði ég líka að hafa það áfram.
Var farinn að hlakka til að grúska í ýmsu, læknisfræði og þjóðlegum fróðleik, og setja niðurstöður mínar og hugleiðingar á blað, hvort sem það væri nú eingöngu gert fyrir sjálfan mig eða færi víðar. Það var algjört aukaatriði. Af þessu varð þó ekki.
Ég kom mér aldrei í þetta. Ég fann mig einfaldlega ekki í þessu gjörbreytta landslagi. Þetta gerðist svo snöggt.
Kom eiginlega aftan að mér, þrátt fyrir að ég hefði verið búinn að kortleggja fyrstu skref mín að læknisstarfinu loknu og ætlað að ganga hnarreistur til þeirrar glímu. Ég, þessi félagslyndi maður, sem ég hafði alla tíð verið, lokaði mig nú hálfpartinn af frá umheiminum. Reglubundnar sundferðir mínar, sem höfðu verið mér ómissandi líkamsrækt um áratuga skeið, heyrðu allt í einu sögunni til og ég var steinhættur að huga að heilsunni, eins og hún kæmi mér ekki lengur við.
Svo fann ég sálufélaga. Margir höfðu átt samneyti við hann og engum reyndist hann vel. Þetta var Bakkus.
Áfengisguðinn! Einmitt sá sem allir ættu að forðast. Hann er bara svo viðkunnanlegur á meðan hann gerir hosur sínar grænar fyrir þeim sem hafa misst fótanna í tilvistinni.
Þeir fara því þveröfugt að, falla fyrir honum og sækja í félagsskap hans. Hann tekur þeim ávallt opnum örmum. Mörgum sleppir hann ekki aftur.
Aðrir sleppa naumlega frá honum og geta þakkað sínum sæla fyrir það. Áfengisdrykkja mín — ansi oft stjórnlaus — stóð yfir talsvert lengi, með fáum og þá stuttum hléum. Hún tók vissulega sinn toll af mér, eins og flestum sem lenda í svipaðri stöðu.
Seint í október 2022 var ég farinn að finna fyrir líkamlegum merkjum sem rekja mátti til alkóhólneyslu minnar. Ég var ég orðinn verulega illa farinn í kviðarholslíffærunum, sífellt verkjaður og kastaði upp í tíma og ótíma. Lifrin í mér var stórsködduð og olli eitrunaráhrifum, briskirtillinn var stokkbólginn, miltað var illa starfandi og maginn var orðinn svo stór að það mátti halda að ég gengi með fimmbura og senn væri komið að fæðingu þeirra.
Í janúar 2023 var ég þar á ofan kominn með afar mikinn bjúg í báða ganglimina, frá tám og upp í nára. Ég komst varla úr sporunum. Hvert skref varð mér kvöl og pína.
Svo bættust við mæði og öðru hverju hraður hjartsláttur. Heilsufar mitt var sannast sagna bágborið og fyrir kom að mér fannst að hver andadáttur minn gæti jafnframt verið sá síðasti. Þannig var það einmitt skömmu fyrir áramótin 2023 til 2024.
Þá sér Erna það einn morguninn að ég hafði sturtað í mig risaskammti af lyfjunum Spiron og Normix. Hún skutlaði mér samstundis upp á Landspítalann. Ég var lagður inn á bráðadeildina og var alls á spítalanum í sex sólarhringa.
Lyfjaátið, sem ég man ekkert eftir, gerði það að verkum að efri mörk blóðþrýstingsins hjá mér snarlækkuðu og ég var að sigla inn í nýrnabilun. Spiron er lyf sem gefið er meðal annars vegna háþrýstings en Normix er sýklalyf við lifrarsjúkdómum og ætlað til að „normalísera“ fólk eins og nafnið bendir til. Það gerðist þó ekki hjá mér, enda var ég fullstórtækur í inntöku þess.
Ég vissi lítið af mér á spítalanum en á fjórða degi ársins 2024 hringdi ég í Ernu, skrökva því að henni að ég sé útskrifaður þaðan og bið hana að sækja mig. Hún gerir það en ætlar að „skila“ mér aftur þangað þegar upp kemst um lygina. Ég neita innlögn og við förum heim.
Það varð engu tauti við mig komið. Ég barðist á móti því að mér yrði bjargað og hélt áfram storka örlögum mínum, þótt áfengið kæmi yfirleitt upp úr mér jafnharðan aftur. Þetta var sannarlega sturlun.
Ég var rekald í lífsins ólgusjó. Á bjargbrún tilverunnar Mitt í hnausþykkri heilaþoku þessa hugarástands rofaði stundarkorn til. Allt í einu vissi ég hvað ég vildi og ætlaði að gera.
Mér fannst að ég ætti bara eina greiða leið út úr þessum ógöngum mínum — að binda enda á líf mitt! Losa mig þar með undan því oki sem á mér hvíldi og ég gæti ekki hrundið af mér með öðrum hætti. Um leið gerði ég Ernu líka stóran greiða.
Hún væri búin að þola nóg af minni hálfu og hafði oftlega reynt að fá mig til að snúa taflinu við en ég sat alltaf fastur við minn keip. Óhagganlegur! Klemmdur á milli andlegra veggja sem þrengdu sífellt að mér.
Nú væri ég aftur á móti áfjáður í tilbreytingu og hafði tekið þá ákvörðun hjálparlaust. Hún yrði endanleg! „Lokastundin“ Við Erna bjuggum orðið í blokk á Þorragötu 7 þegar kom að þessum óyndiskafla í lífi mínu.
Hún er í Vatnsmýrinni, gengur inn af Suðurgötunni vestan megin og liggur samsíða flugvallarsvæðinu. Þarna fara strætisvagnar um. Það ætlaði ég að notfæra mér í þeirri viðleitni minni að hverfa burt úr þessu mannlífi.
Ég valdi morgunsárið, 15. janúar 2024, til verksins, því ég vissi að í fyrstu strætóferð dagsins, upp úr sexleytinu, væru yfirleitt fáir farþegar ef þá nokkrir í vagninum. Þetta átti ekki að verða nein „bíósýning“.
Bara ég að segja bless! Svo væri trúlega heldur enginn í biðskýlinu við Suðurgötuna á þessum tíma dagsins. Það sæi vagnstjórinn með góðum fyrirvara og því myndi hann halda ótrauður áfram akstrinum, hvorki hægja þar á né stöðva vagninn.
Biðskýlið var mannlaust þegar ég kom mér fyrir við hlið þess að norðanverðu, ósýnilegur vagnstjóranum. Ég var þarna einn í morgunskímunni. Það var heldur enginn farþegi sjáanlegur í strætisvagninum þegar hann brunaði úr Skerjafirðinum og norður Suðurgötuna.
Dæmið var að ganga upp. Hér látum við staðar numið, en í bókinni er þessu að sjálfsögðu fylgt eftir. Einnig þremur morðtilraunum sem beindust gegn Gunnari Inga stuttu eftir þetta.
———————————————— Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef ein-stak-ling-ar glíma við sjálfs-vígs-hugs-an-ir er bent á Hjálp-arsíma Rauða kross-ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn.
Einnig má hafa sam-band við Píeta-sam-tök-in sem veita ókeyp-is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.