Ferðamenn varaðir við lúmskum svikum – Svikararnir vita hvar og hvenær þú átt bókað herbergi

Ferðamenn varaðir við lúmskum svikum – Svikararnir vita hvar og hvenær þú átt bókað herbergi

Ferðamenn eru varaðir við svikastarfsemi þar sem glæpamenn nýta sér raunverulegar hótelbókanir til að komast yfir greiðslukortaupplýsingar fólks. Svikararnir hafa í mörgum tilvikum nákvæmar upplýsingar um ferðaáætlanir fórnarlambanna og senda þeim skilaboð sem virðast koma frá Booking.com eða hótelunum sjálfum. Norski ferðablaðamaðurinn Vibeke Montero var nálægt því að falla í gildruna skömmu áður en hún hélt til Feneyja fyrr í þessum mánuði.

Hún fékk skilaboð á WhatsApp þar sem hún var beðin um að staðfesta hótelbókun sína innan tólf klukkustunda, annars ætti hún á hættu að missa bókunina. „Þeir vissu hvað ég hét, hvaða daga ég ætlaði að ferðast og á hvaða hóteli ég ætlaði að gista. Þetta voru ekki svona skilaboð þar sem svikararnir voru að skjóta út í loftið,“ segir Montero í samtali við norska miðilinn VG sem fjallar um málið.

Hún smellti á tengil í skilaboðunum og lenti á vefsíðu sem virtist vera Booking.com. Þar voru myndir af hótelinu hennar, rétt heimilisfang og allar upplýsingar um bókunina. Það var ekki fyrr en Montero var beðin um að slá inn greiðslukortaupplýsingar sínar að hana fór að gruna að eitthvað væri ekki með felldu.

Hún hafði þegar greitt fyrir gistingu sína og sá því enga ástæðu til að gefa upplýsingarnar upp aftur. Síðar kom á daginn að síðan reyndist vera fölsuð. Samkvæmt úttekt netöryggisfyrirtækisins Gen Digital frá því í maí síðastliðnum höfðu að minnsta kosti 350 gististaðir í 50 löndum orðið fyrir barðinu á þessari tegund svikastarfsemi.

Flest tilvikin komu upp í Evrópu. Svikararnir komast meðal annars yfir bókunarupplýsingar með því að blekkja starfsfólk hótela til að afhenda lykilorð eða opna skaðlega tengla sem innihalda spilliforrit. Þeir geta síðan sent gestum sannfærandi skilaboð með réttum upplýsingum um fyrirhugaða dvöl.

Booking.com staðfesti í apríl að óviðkomandi hefðu komist yfir upplýsingar um hótelbókanir viðskiptavina, meðal annars nöfn, símanúmer og upplýsingar um væntanlegar ferðir. Fyrirtækið hefur áréttað að það biðji viðskiptavini aldrei um greiðslukortaupplýsingar í gegnum tölvupóst, síma, WhatsApp eða SMS. Ferðamönnum er ráðlagt að smella ekki á tengla í óvæntum skilaboðum um greiðslur eða staðfestingu bókana, heldur hafa beint samband við hótelið eftir öðrum leiðum.

Related Articles

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Back to top button