Dramatískur sigur Skagamanna
Dramatískur sigur Skagamanna
ÍA vann dramatískan sigur á Fram í Bestu deild karla í kvöld. Kristófer Konráðsson kom heimamönnum í Fram yfir snemma leiks en skömmu síðar fékk Freyr Sigurðsson rautt spjald og liðið orðið manni færra. Baldvin Þór Berndsen kom Skagamönnum svo í 1-2 með tveimur mörkum sitt hvoru megin við hálfleikinn.
Kristófer jafnaði með sínu öðru marki um miðjan seinni hálfleikinn en á annarri mínútu uppbótartíma kom Rafael Máni Þrastarson ÍA yfir á ný og Viktor Jónsson innsiglaði svo 2-4 sigur. Fram er í þriðja sæti með 46 stig og mun enda þar. Skagamenn eru sæti neðar með 37 stig, stigi fyrir ofan Breiðablik.
Ein umferð er eftir af Bestu deildinni og verður hún leikin á laugardag.