Fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar opnar sig um erfiða stöðu – „Það er sárt“

Fyrrverandi leikmaður Stjörnunnar opnar sig um erfiða stöðu – „Það er sárt“

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Steven Caulker hefur opnað sig um erfiðleika sína við að finna vinnu eftir að knattspyrnuferlinum lauk. Caulker, sem er 34 ára, lék með Stjörnunni hér á landi síðasta sumar en lagði skóna á hilluna í desember. Hann tók í kjölfarið við starfi aðstoðarþjálfara hjá Konyaspor í Tyrklandi en hætti þar í september.

„Það er streituvaldandi að vera atvinnulaus. Ég hef oft verið í þessari stöðu áður og þekki tilfinningasveiflurnar, en það gerir þetta ekkert auðveldara,“ skrifaði Caulker á LinkedIn-síðu sína. „Það er sárt að sækja um störf sem maður hefur alla hæfni til að sinna en fá ekki einu sinni boð í atvinnuviðtal.“ Caulker segist þó reyna að halda í jákvæðnina og viðurkennir að hann hafi hafnað starfstilboðum sem samræmast ekki markmiðum hans.

Caulker lék meðal annars með Tottenham, Liverpool og QPR á ferlinum. Hann hefur áður rætt opinberlega um baráttu sína við áfengis- og spilafíkn.

Related Articles

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Back to top button